Það eru engir þröskuldar í tölvunni minni.

Enn eitt árið gleymir fólk muninum á hrekk eða lygi, og aprílgabbi.

Ekki er hægt að hlaupa apríl með því að smella á vefslóð enda verður sá sem gabbaður er að fara yfir þröskuld svo hann teljist hafa hlaupið apríl.


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brenndar pizzur hollar?

Ég er nú enginn bakari en myndi pizza sem er bökuð lengur en venjulega og við meiri hita en venjulega ekki brenna?


mbl.is Pítsur gætu verið heilsusamlegri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svik í tafli?

Ég er á þeirri skoðun að það lag sem vinnur forkeppnina hér heima hverju sinni eigi að vera sent út í aðalkeppnina.

Ha? segið þið þá kannski en leyfið mér að útskýra.

Ár eftir ár hefur þjóðin valið lag flutt á íslensku í forkeppninni sem síðan er flutt á ensku úti. Ég hef ekkert á móti því að framlag Íslendinga sé flutt á ensku í aðalkeppninni en ég er algjörlega á móti því að laginu sem við veljum sé breytt um leið og síðasta atkvæðið er komið í hús. Ef það á að vera á ensku í aðalkeppninni skal það líka vera á ensku í forkeppninni, þannig getum við þó gengið að því vísu að það lag sem við sendum út sé lagið sem við kusum.

 


mbl.is Eiríkur verður fimmti á svið í Helsinki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börn, kostnaður og hvað ríkið gæti gert.

Allir sem eiga börn kannast við kostnaðinn sem því fylgir, bleiur, barnamatur, barnaföt og svo framvegis. Fyrsta þessa mánaðar var lækkaður VSK af barnamat eins og á öðrum mat en kostnaðurinn er samt sem áður mikill.

Er ekki kominn tími til að setja bleiur og barnaföt þó ekki sé meira nefnt í 7% skattþrepið eða jafnvel taka VSK alveg af þessum vörum? Nú gæti einhver sagt að pappírsbleiur séu nú lúxus og að maður gæti látið börnin sín vera með taubleiur en þá er spurningin: Eru taubleiur og þvottaefni ekki í hærra skattþrepinu?

Börn vaxa hratt upp úr fötunum sínum og föt þeirra eldri slitna hratt, og ekki er hægt að segja að barnaföt séu ódýr hér á landi. Hvernig væri að létta undir með barnafólki og lækka eða jafnvel sleppa virðisaukaskattinum á þessum vörum?


mbl.is Fæðingarorlof feðra lengist og frjósemi eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband