1.4.2008 | 11:10
mbl.is veit ekki hvað aprílgabb er
Í dag, 1. apríl, er hefð fyrir því að reyna að fá fólk til að hlaupa apríl, en það er það kallað þegar fólk gerir eitthvað á þessum degi í framhaldi af frétt eða einhverju sem því hefur verið sagt. Ekki er hlaupið apríl nema viðkomandi hafi farið yfir að minnsta kosti einn þröskuld áður en hann komst að því að um uppspuna er að ræða.
Svo virðist sem að mbl.is haldi að nóg sé að smella á link í frétt, sbr þessi frétt, en það er misskilningur hjá þeim.
Vona að þeim gangi betur næst.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.